Mig langar að segja þér frá áhrifaríku örnámskeiði fyrir framhaldsskólanemendur sem eru að ljúka námi
ÓSTÖÐVANDI ÚTSKRIFTARNEMAR Í TOPP TILFINNINGALEGU ÁSTANDI
Framtíðin er bjartari fyrir þau sem kunna öflugar aðferðir til að líða vel & og ganga vel á lífsins ólgusjó

Ég vil þakka þér fyrir að taka þér tíma til að kynna þér þessa leið til að efla og styrkja nemendur á lokaspretti framhaldskólagöngu sinnar svo þau standi sterkari og við upphaf nýs kafla í lífinu. Ég setti þetta örnámskeið saman með það fyrir augum að búa til auðskiljanlegt fræðsluerindi um mátt hugarfars og tilfinninga ásamt því kenna einfaldar en áhrifaríkar aðferðir sem auka vellíðan og styrkir trú nemenda á eigin getu til að ná árangri.. Þekkingin og aðferðirnar sem þau læra eru í senn öflug hugvekja og innblástur sem geta gagnast umsvifalaust í náminu sjálfu á lokasprettinum en stendur einnig með þeim út í lífið. Það er mitt einlæga markmið að nemendur gangi út með eld í brjósti vitandi að þau kunni aðferð sem getur stór bætt lífsgæði þeirra, frammistöðu, árangur og ánægju.
Erindið fjallar um mátt tilfinninga, áhrif þeirra á upplifanir okkar, ákvarðanir, athafnir og þar með áhrif þeirra á hamingju og velgengi. Við lærum að kveikja á uppbyggilegum tilfinningum og hvernig við getum að stýrt hugarástandi okkar betur svo það vinni með okkur, í stað þess að sveiflast tilviljanakennt í takt við ytri áreiti, ýmist jákvæðum eða neikvæðum afleiðingum.


Markmið:
Hugmyndafræðin og aðferðirnar miða að því að byggja upp færni í að kveikja á ákveðnum tilfinningum sem stórauka aðgengi heilans að innri auðlindum. Þetta eru auðlindir sem sem við búum raunverulega nú þegar yfir en höfum ekki alltaf gott aðgengi að. Þær má flokka í 1) upplýsingar 2) hæfileika 3) skapandi hugsun. örnámskeiðið er hannað til að opna augu nemenda fyrir þeirri staðreynd að við getum tekið stjórn á líðan okkar og kveiki löngun til að gera það.
Með því að nota aðferðirnar geta nemendur ekki einungis stór bætt daglega líðan, sjálfsöryggi og trú á eigin getu. Þessar aðferðir kynda einnig upp tilfinningaástand sem bætir gæði ákvarðana og athafna. Eitt af því besta er að áhrifin gera vart við sig strax á meðan á örnámskeiðinu stendur því ég fer með hópnum í gegnum aðferðirnar. Þótt erindið sé stutt þá dugir það til að þau finni kraftinn sem býr innra beð þeim, þau upplifa að þau geti leyst hann úr læðingi og sjá að þessi færni getur nýst á hvaða sviði lífsins sem er. Ég hef rekist á nemendur mörgum árum eftir að þau sátu þetta örnámskeið sem tjáðu mér að lífið hafi tekið stakkaskiptum til betri vegar með ástundun aðferðanna.
Hvernig fer námskeiðið fram?
Óstöðvandi útskriftarnemendur í topp tilfinningalegu ástandi er 1 til 1.5 klst. langt örnámskeið þar sem virk þátttaka, húmor, gleði og dúndur orka ráða ríkjum. Ég skipti því upp í þrjá hluta: 1) innblástur & fræðsla. 2) Aðferðin kynnt og útskýrð. 3) Við upplifum aðferðina á eigin skinni. Framsetningin er einstaklega lífleg og miðar að því að þetta sé HÖRKU SKEMMTILEG upplifun um leið og nemendur læra að gíra sig upp í topp tilfinningalegt ástand hvar og hvenær sem er.








