top of page

Mig langar að segja þér frá áhrifaríku námskeiði fyrir stjórnendur & millistjórnendur

STERKARI LEIÐTOGI

öflugar aðferðir til að stíga inn í sitt öglugasta leiðtoga-zone sem ræktar mannauðinn af alúð og festu

SEM HEFUR MIKIL ÁHRIF OG VEITIR INNBLÁSTUR

BG logo2.png

Viltu öðlast djúpstæðan skilning á mannlegu eðli og læra heiðarlegar en áhrifaríkar aðferðir til að hafa meiri áhrif en gengur og gerist á viðhorf, ákvarðanir og hegðun mannauðsins? 

 

Hvort sem við rekum lítið fjölskyldufyrirtæki eða stórfyrirtæki með hundruðum starfsmanna þá veltur þróun og árangur þess að miklu leyti á hæfni leiðtoganna til að leysa vandamál og hámarka auðlindir eins og tíma, fjármagn, mannauð, reynslu ofl. Til þess að svo megi verða þurfa leiðtogar að vera stöðugt í stakk búnir til taka ákvarðanir, framkvæma og hafa öflug áhrif á fólkið sitt við hvaða aðstæður sem upp kunna að koma.

Gæði ákvarðanna, viljastyrkur og áhrifamáttur leiðtogans veltur að miklu leiti á venjubundnu mynstri í líðan viðkomandi, dag frá degi. Rannsóknir Dr. Barböru Fredrickson í jákvæðri sálfræði hafa leitt í ljós að tilfinningalegt ástand okkar er eins og gátt sem ákvarðar aðgengi heilans að þekkingu, hæfileikum og sköpunargáfum, auk þess að hafa stórkostleg áhrif á samkiptahæfni og áhrifamátt.

 

Þar að leiðandi er það lykilatriði fyrir fyrirtæki að leiðtogar þess kunni að temja sér uppbyggilegt tilfinningalíf sem gerir þeim kleift að hámarka gæði ákvarðana sinna og athafna svo fyrirtækið fái notið þess besta sem hann hefur upp á að bjóða.

Stjórnendur og millistjórnendur eru ein dýrmætasta auðlind fyrirtækja þar sem leiðtogahæfni spilar gríðarstórt hlutverk. Hlutverk leiðtogans er m.a að taka ákvarðanir og sjá til þess að hópurinn í framkvæmi þær. Til þess þarf leiðtoginn að byggja upp samband við hópinn sem er þess eðlis að fólk vilji fylgja honum. Leiðtoginn þarf að geta selt hugmyndir, veitt innblástur, tekið erfiðar ákvarðanirnar, leyst vandamál, miðlað málum, tekist á við óvæntar áskoranir, viðhaldið áhuga og metnaði, um leið og starfsánægja hópsins hvílir á hans herðum. Þegar vel gengur ánafnar sterkur leiðtogi hópnum heiðurinn, þegar illagengur tekur hann ábyrgðina. "Engin pressa kæri leiðtogi en ekki fokka þessu upp" 

Sterkur leiðtogi er sá sem getur tekist á við þetta hlutverk af festu og öryggi hvort sem aðstæður eru góðar eða slæmar. Þess vegna er mikilvægt að leiðtoginn búi yfir djúpri þekkingu á mannlegu eðli og áhrifaríkum aðferðum til þess að: 

  • Tryggja að hans eigin líðan hans sé stöðug í eins öflugu ástandi og mögulegt er.

  • Tryggja að hans eigin viðhorf séu ávallt uppbyggileg.

  • Hafa uppbyggileg áhrif á viðhorf, ákvarðanir og athafnir fólksins sem hann þjónar og leiðir.

  • Rækta og viðhalda menningu sem fetar stíg sálræns örggis og metnaðar sem fæðir af sér hamingjusaman, vinnufúsan mannauð sem gengur samstíga í átt að stórum markmiðum. 

 

Þótt margir átti sig á því að leiðtagar þjóni lykilhlutverki þá virðist of fáir átta sig á því hve mikil áhrif eftirfarandi þættir hafa á frammistöðu leiðtogans:

  • Orkustig & líðan leiðtogans: tilfinninga ástand leiðtogans

  • Viðhorf & trú leiðtogans: hugarfarið

  • Færni leiðtogans til að hafa áhrif: áhrifamáttur leiðtogans

Námskeiðið Sterkari leiðtogi er sérstaklega hannað til að efla færni á þessum sviðum svo leiðtoginn sjálfur standi sterkur á svellinu og geti blásið öðrum í brjóst. Eftir námskeiðið hafa leiðtogar dýpri þekkingu á:

 

- Sálfræðilegum forsendum frammistöðu árangurs og ánægju.

- Hvað hefur raunverulega áhrif á leiðtogann og ákvarðanatöku hans. 

- Drifkröftunum að baki mannlegri hegðun.

- Hvers vegna fólk er til í að vaða eld og brennistein með ákveðnum leiðtogum en ekki öðurm. 

- Mætti tilfinningalegs ástands. ..... og hvernig við getum virkjað mátt þeirra svo þær vinni með okkur

- Hvers vegna sumt fólk fæst varla til vinna sín verkefni meðan aðrir eru ávallt metnaðarfullir

- Þarfakerfi manneskjunnar og hvernig við getum nýtt þá þekkingu til að bæta samskipti, auka áhrif 

  okkar og efla aðra. 

- Hvernig 

Þetta námskeið hefur verið á dagskrá hjá Opna háskólanum í HR síðan hausið 2017 og vakið gríðarlega lukku.

 

Námskeiðið er kennt í tveim þriggja klukkustunda löngum lotum með viku millibili. Eftir hvort skipti fá þáttakendur 5 daga eftirfylgni yfir netið

Markmið: 

Hugmyndafræðin og aðferðirnar miða að því að byggja upp færni í að kveikja á ákveðnum tilfinningum sem stórauka aðgengi heilans að innri auðlindum. Þetta eru auðlindir sem sem við búum raunverulega nú þegar yfir en höfum ekki alltaf gott aðgengi að. Þær má flokka í 1) upplýsingar 2) hæfileika 3) skapandi hugsun. örnámskeiðið er hannað til að opna augu nemenda fyrir þeirri staðreynd að við getum tekið stjórn á líðan okkar og kveiki löngun til að gera það. 

Með því að nota aðferðirnar geta nemendur ekki einungis stór bætt daglega líðan, sjálfsöryggi og trú á eigin getu. Þessar aðferðir kynda  einnig upp tilfinningaástand sem bætir gæði ákvarðana og athafna. Eitt af því besta er að áhrifin gera vart við sig strax á meðan á örnámskeiðinu stendur því ég fer með hópnum í gegnum aðferðirnar. Þótt erindið sé stutt þá dugir það til að þau finni kraftinn sem býr innra beð þeim, þau upplifa að þau geti leyst hann úr læðingi og sjá að þessi færni getur nýst á hvaða sviði lífsins sem er. Ég hef rekist á nemendur mörgum árum eftir að þau sátu þetta örnámskeið sem tjáðu mér að lífið hafi tekið stakkaskiptum til betri vegar með ástundun aðferðanna. 

Hvernig fer námskeiðið fram? 

Óstöðvandi útskriftarnemendur í topp tilfinningalegu ástandi er 1 til 1.5 klst. langt örnámskeið þar sem 
virk þátttaka, húmor, gleði og dúndur orka ráða ríkjum. Ég skipti því upp í þrjá hluta: 1) innblástur & fræðsla. 2) Aðferðin kynnt og útskýrð. 3) Við upplifum aðferðina á eigin skinni. Framsetningin er einstaklega lífleg og miðar að því að þetta sé HÖRKU SKEMMTILEG upplifun um leið og nemendur læra að gíra sig upp í topp tilfinningalegt ástand hvar og hvenær sem er.

bottom of page