top of page
Heil og sæl kæra starfsfólk Fjölbrautaskólans við Ármúla!
Mig langar að þakka ykkur innilega fyrir samveruna á örnámskeiðinu ÓSTÖÐVANDI LIÐSHEILD 4.mars s.l. þar sem við skoðuðum hvaða áhrif tilfinningalegt ástand okkar getur haft á samskipti og liðsanda.
Núna í kjölfarið langar mig að deila með ykkur glærunum sem við fórum yfir og bæta örlitlu við fyrir þá sem vilja skoða þetta betur. Hér að neðan finnið þið:
-
#1 Glærurnar sem við fórum yfir á örnámskeiðinu.
-
#2 Myndband með hljóðmynd og útskýringum á Optimized rútínunni sem við fórum í gegnum í lok fyrirlestrarins.
-
#3 Myndband með 1 klst. fyrirlestri sem ég hélt fyrir V.R árið 2020 og fjallar um hvernig við getum gírað tauga og boðefnakerfið upp í topp tilfinningalegt ástand með það fyrir augum að höndla betur óvissu og álag við stressandi aðstæðu.
-
#4 Myndband með Optimized Morgunrútínunni en það er öflugasta leiðin sem ég kenni og þjálfa fyrir þá sem vilja komast í topp tilfinningalegt ástand og hámarka frammistöðu, árangur og ánægju í leik og starfi.
Ég vona innilega að þið hafið haft gagn og gaman af erindinu. Sjálfum fannst mér virkilega skemmtilegt að vera með ykku.
Endilega fylgið Optimized Performance á Facebook @Optimized Performance ehf, en þar deili ég öðru hvoru allskonar skemmtilegu. Einnig yrði ég afskaplega þakklátur þeim sem eru til í skrifa umsögn og gefa stjörnur á facebook með því að smella hér.
Ég hlakka til að rekast á ykkur aftur!
Kær kveðja, Bjartur
#1 Glærurnar:
Smelltu hér eða á myndina fyrir neðan til að fá aðgang að glærunum.
#2 Myndband með hljóðmynd og útskýringum á rútínunni sem við gerðum í lokin.
#3 Óstöðvandi á óvissutímum
#4 Optimized Morgunrútínan
bottom of page