
Þjónusta fyrir einstaklinga með Bjarti Guðmundssyni
Takk fyrir að skoða þá þjónustu sem ég hef að bjóða fyrir einstaklinga. Það að þú ert hér segir mér að lífið er ekki nákvæmlega eins og þú vilt að það verði í framtíðinni. Annaðhvort er eitthvað sem er ekki nógu gott og þú vilt laga það, eða staðan í nútíðinni er góð en þig langar að skapa enn betri framtíð. Hver sem staða þín er þá er ég hér til að hjálpa þér og lofa árangri. Síðan árið 20216 hefur markmið mitt verið að hjálpa fólki að komast á þann stað sem það óskar sér á eins skömmum tíma og mögulegt er. Oftast er sá tími margfalt styttri en flestir þorir að vona og nú vona ég að þú fáir að upplifa það sama. Aðferðirnar sem ég mun kynna þig fyrir og við munum nota hafa ekki bara marg sannað gildi sitt, heldur eru þær einstakar að því leiti að þær eru skemmtilegar og hafa fjöldann allan af jákvæðum aukaverkunum. Hvernig get ég sagt þetta og staðið með því? Jú vegna þess að við munum ekki bara vinna að því að breyta aðstæðum þínum til hins betra, við munum uppfæra það sem raunverulega hefur mest áhrif á líf þitt og gæði þess, sem ert ÞÚ, líðan þín og viðhorf. Við munum uppfæra og styrkja ÞIG. Sama hvað við höfum gengið í gegnum þá er staðreyndin sú að við sjálf erum manneskjan sem getur breytt öllu til hins betra en til þess að það gerist þurfum við stundum betri þekkingu, betri aðferðir, uppfært hugarfar og og öflugri líðan.
Góðu fréttirnar eru að Þetta er mun einfaldara en maður skyldi ætla og vondu fréttirnar eru að ÞETTA ER EKKI LÉTT ef markmiðið er langtíma breyting. Ef þetta er eitthvað sem höfðar til þín, þá hvet ég þig til að halda áfram að lesa.
Ég trúi því að allur árangur og ánægja byggi á þremur þáttum:
-
Hversu fær við erum í því að finna AÐFERÐIR sem virka fyrir hvert verkefni.
-
Hversu fær við erum í að innræta hugarfarið VIÐHORFUM sem vinna með okkur.
-
Hversu vel við getum stýr tilfinningalegu ástandi okkar.
Þessi færni hefur áhrif á allt sem við tökum okkur fyrir hendur hvort sem markmiðið er að ná hæstu hæðum og skara fram úr eða vinna okkur út úr erfiðri lífsreynslu. Mig langar að útskýra betur hvers vegna þessir þrír þættir skipta svo miklu máli.
Ef við viljum að eitthvað breytist þá þurfum við að framkvæma ákveðna hluti. Aðferð er þá einskonar uppskrift sem segir okkur hvaða þarf að gera og í hvaða röð. Aðferðin er í raun aðgerðaráætlun. Ef við erum með aðferð sem hefur sýnt sig að virkar hjá öðrum þá eru góðar líkur á að hún geti skilað samskonar árangri fyrir okkur. Ef við notum hins vegar ranga aðferð þá skiptir litlu máli hversu dugleg við erum, uppskeran mun ekki mæta væntingum okkar.
Segjum sem svo að við vitum hvað við viljum og erum með góða aðferð í höndunum. Á hverju veltur árangurinn núna? Svarið er: Viðhorfum okkar. Viðhorf eru í raun tilfinningin, myndirnar, setningarnar sem skjóta upp kollinum þegar við hugsum um ákveðið atriði. Hvaða tilfinningum finnur þú fyrir þegar þú heyrir talað um:
Mannrækt, Donald Trump, pólitík, 21 km hlaup, KR, peninga, yoga, andlega iðkun, halda ræðu, Dauðarefsingar, Kringlukast, reykingar, þjóðhátíð, heilsu, ást, velgengni, vellíðan, þig?
Tilfinningingarnar sem þú finnur fyrir eru viðhorf þín til þessara atriða. Viðhorfin hjálpar þér að átta þig á merkingu þess sem þú skynjar og um leið vega og meta hvort tiltekin atriði skipta þig máli, hvort þau séu eftirsóknarverð eða hvort það beri að forðast þau. Viðhorf geta unnið kröftuglega með okkur eða gjörsamlega stoppað okkur. Ef ég veit hvað ég vil, er með góða aðferð en viðhorfin mín eru eitthvað á þessa leið: „ég gæti aldrei gert þetta“ „ég er of X til að reyna“ „þetta er kjánalegt“ þá eru góðar líkur á að ég leggi árar í bát við mótlæti.
Gefum okkur að nú séum við með góða aðferð og viðhorf sem segja „ég get“ „ég skal“ „þetta mun bæta líf mitt“ o.fl. í þeim dúr. Hvaða afl gæti nú haft áhrif á útkomuna?
Svarið er Tilfinningalegt ástand okkar. Hvers vegna? Því það hefur stórkostleg áhrif á aðgengi heilans að upplýsingum, hæfileikum og skapandi hugsun. Þegar við erum í topp tilfinningalegu ástandi þá bókstaflega galopnast aðgengi okkar að öllu því besta sem býr innra með okkur, hugrekki eykst, við sjáum betur tækifærin, verðum lausnamiðaðri og tökum uppbyggilegri ákvarðanir sem leiða til uppbyggilegra athafna. Í slæmu tilfinningalegu ástandi eigum við erfitt með að sækja upplýsingarnar sem eru til staðar í kollinum á okkur, hæfileikar virðast dala, skapandi hugsun næstum hverfur og einföldustu hlutir vaxa okkur í augum. Fyrir vikið verður erfitt að taka ákvarðanir og fá sig til að taka skrefin í átt að settu marki.
Í dag erum við svo heppin að aðgengi að aðferðum hefur aldrei verið betra. Við getum notað gervigreind, sótt nám eða námskeið, lesið bækur, horft á myndbönd eða hlustað á viðtöl um það hvernig megi ná svo gott sem hvaða markmiði sem er! Það sem sker úr um hvort ætlunarverkið takist eru viðhorf okkar og venjubundið tilfinningaástand.
Ég býð upp á öfluga viðhorfs- og tilfinningaþjálfun þar sem ég legg áherslu á að kenna og þjálfa aðferðir sem gera fólki kleift að komast í það sem ég kalla topp tilfinningalegt ástand og aðferðir til að losa okkur við hamlandi viðhorf og skipta þeim út fyrir viðhorf sem vinna með okkur á öflugan hátt.

