top of page

Víkingapepp, ísbrjótar og liðsefling fyrir

VIÐBURÐAFYRIRTÆKI OG VIÐSKIPTAVINI ÞEIRRA

Gerum næsta viðburð að upplifun sem fólk talar um. Ég hjálpa ykkur að brjóta ísinn, lyfta orkunni og þétta hópinn með húmor, krafti og virkri þátttöku.

​

Ég heiti Bjartur Guðmundsson, leikari og frammistöðuþjálfi. Ég býð viðburðafyrirtækjum upp á Víkingapepp, stuttar innkomur, fyrirlestra og liðseflingu fyrir viðskiptavini þeirra, jafnt erlenda sem innlenda. Við veljum lengd og áherslur út frá hópnum og dagskránni, allt frá 20 mínútna ísbrjóti upp í 3,5 klst. námskeið. Allt er í boði á íslensku og ensku.

ÞRJÁR LEIÐIR TIL AÐ LYFTA VIÐBURÐINUM

​

Víkingapepp: Kraftmikil og húmorísk upplifun með íslenskum blæ fyrir erlenda og innlenda hópa. Frábær viðbót við hvataferð eða fyrirtækjaviðburð.

​

Ísbrjótur og stutt innkoma: Frá 20 mínútum af gleði, orku og virkri þátttöku. Tilvalið í upphafi dags, milli erinda eða þegar hópurinn þarf ferskan kraft.

​

Óstöðvandi liðsheild: Liðsefling og hagnýtar aðferðir til að efla líðan, viðhorf og samskipti. Frá styttra peppi og fyrirlestri upp í 3,5 klst. námskeið.

​

AF HVERJU AÐ BJÓÐA ÞETTA VIÐSKIPTAVINUM YKKAR?

Þátttakendur tengjast í gegnum húmor, hreyfingu og sameiginlega upplifun. Þið fáið sveigjanlega innkomu sem fellur að hópnum, dagskránni og markmiðum viðburðarins. Efnið er í boði á íslensku og ensku, fyrir starfsdaga, ráðstefnur, hvataferðir og hátíðir.

Eigum við að skapa næstu upplifun saman?

​

Sendið mér dagsetningu, staðsetningu, áætlaðan fjölda þátttakenda, tungumál og tímaramma. Ég legg til innkomu sem passar við hópinn og sendi ykkur tilboð.

​

Bjartur Guðmundsson | 660 7724 | bjartur@bjarturgudmundsson.is

Þið getið líka sent mér skilaboð í spjallinu hér á síðunni.

​

Bókið 30 mínútna kynningarfund fyrir þá sem setja saman viðburði og tilboð hjá ykkur. Þar kynnumst við nálguninni og skoðum hvernig þjónustan getur skapað virði fyrir ykkur og viðskiptavini ykkar.

​

Hér fyrir neðan má lesa nánar um liðseflinguna og styttri innkomur.

Óstöðvandi liðsheild í topp tilfinningalegu ástandi

Óstöðvandi kennarar við HÍ_edited.jpg

Fyrir viðskiptavini ykkar sem vilja meira en skemmtilegt uppbrot: kraftmikil liðsefling þar sem hópurinn hlær, tekur virkan þátt og lærir hagnýtar aðferðir til að efla líðan, viðhorf og samskipti. Óstöðvandi liðsheild í topp tilfinningalegu ástandi hentar vel á starfsdaga, í starfsmannaferðir og inn í lengri viðburðadagskrá. Við vinnum með það sem hver einstaklingur leggur til hópsins: eigin orku, viðhorf og ábyrgð á samskiptum. Með lifandi framsetningu, húmor og sameiginlegum æfingum fær hópurinn tækifæri til að tengjast og finna kraftinn í að vinna saman. VELJIÐ LENGD EFTIR DAGSKRÁNNI Stutt pepp eða um hálftíma innkoma: létt og kraftmikið uppbrot með áherslu á orku og samheldni. 1 - 1,5 klst. fyrirlestur og liðsefling: lykilhugmyndir, virk þátttaka og einfaldar aðferðir sem hægt er að nota strax. 3,5 klst. námskeið: dýpri vinna með líðan, hugarfar og liðsheild. Því fylgir fimm daga eftirfylgniáskorun til að hjálpa hópnum að nýta efnið í daglegu lífi. Á ÍSLENSKU OG ENSKU Efni og áherslur eru aðlagaðar að hópnum, tungumálinu og markmiðum viðskiptavinarins. Þið haldið utan um viðburðinn og við finnum saman réttu nálgunina. UNDIRBÚNINGUR OG TILBOÐ Sendið mér upplýsingar um hópinn, staðsetningu, dagsetningu og tímaramma. Við förum yfir aðstöðu, skjá og hljóð í samræmi við útfærsluna og ég sendi ykkur tilboð. Hægt er að byrja á 30 mínútna kynningarfundi með teyminu ykkar.

Víkingapepp og stuttar innkomur

Þjónusta fyrir viðburðafyrirtæki.gif

Gefið hópnum kraftmikla upplifun með íslenskum blæ. Víkingapepp er húmorísk og lífleg innkoma sem brýtur ísinn, kveikir þátttöku og lyftir stemningunni. Hún hentar sérstaklega vel erlendum gestum í hvataferðum og á fyrirtækjaviðburðum, en er líka í boði fyrir íslenska hópa. Fólkið fær að vera með í upplifuninni. Við virkjum orkuna, hlæjum saman og sköpum sameiginlega stund sem þéttir hópinn og gefur viðburðinum aukinn kraft. HVAR PASSAR INNKOMAN? Í upphafi ráðstefnu eða starfsdags til að brjóta ísinn. Milli erinda eða eftir hádegi til að lyfta orkunni. Í hvataferð, starfsmannaferð, móttöku eða hátíðardagskrá sem eftirminnilegt uppbrot. FRÁ 20 MÍNÚTUM Við veljum lengdina saman út frá dagskrá og hópi. Hvort sem óskað er eftir um hálftíma peppi eða lengri innkomu, þá er markmiðið skýrt: virk þátttaka, meiri orka og góð stemning. Á ÍSLENSKU OG ENSKU Ég hef komið fram á fjölda ráðstefna á Íslandi og einnig erlendis. Framsetningin er aðlöguð að tungumáli hópsins, tilefninu og því sem þið viljið að gestirnir upplifi. SAMSTARF VIÐ YKKUR Segið mér frá viðskiptavininum, hópnum og dagskránni. Ég hjálpa ykkur að finna innkomu sem fellur að heildarupplifuninni og sendi tilboð. Við getum líka byrjað á stuttum kynningarfundi með teyminu ykkar.

Sjáðu þjónustuna í verki

bottom of page